Ætlum við að lúta því, eftir 97 ára fullveldi, að ESB taki yfir landamæri Íslands?

Segi Ísland ekki senn upp Schengen-samningnum, sem ráðamenn í ESB kalla „eins og sviss­neskan ost“ og „að hluta í dauðadái“, er líklegt að fram­kvæmda­stjórn ESB fái hér fullveldis-skerðandi inngripsvald í landa­mæra­gæzlu,*

"telji hún að eitt­hvert aðild­ar­ríkja Schengen-sam­starfs­ins sé ekki að sinna eft­ir­liti á ytri landa­mær­um svæðis­ins nægj­an­lega vel. Til þess mun landa­mæra­lög­regl­an ekki þurfa samþykki viðkom­andi ríkja og rík­in munu ekki geta komið í veg fyr­ir það. Ísland er eitt aðild­ar­ríkja Schengen-sam­starfs­ins en til­lög­urn­ar gera ráð fyr­ir að loka­orðið í þess­um efn­um verði hjá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins,"

segir Hjörtur J. Guðmundsson, sem hefur tvær háskólagráður í Evrópu­fræð­um, í vandaðri grein sinni á Mbl.is í gær.

Þetta hljómar í raun sem ofurróttækar fullyrðingar, en ekkert verður þó um þær efazt, því að m.a. greindu Fin­ancial Times og Wall Street Journal frá málinu í fyrradag, og einnig var um það fjallað á frétta­vefn­um Eu­obser­ver.com í gær. Og takið eftir þessu (undirstrikun jvj):

Fram kem­ur í frétt­um blaðanna að ljóst sé að til­lög­urn­ar feli í sér veru­legt framsal á full­veldi frá Schengen-ríkj­un­um til Evr­ópu­sam­bands­ins. Hugs­an­lega það mesta inn­an sam­bands­ins síðan evr­unni var komið á lagg­irn­ar, seg­ir í Fin­ancial Times. Hin nýja lands­mæra­lög­regla kæmi í staðinn fyr­ir landa­mæra­stofn­un sam­bands­ins, Frontex.

Við ættum ekki annað eftir, þegar styttist í aldarafmæli sjálf­stæðs og fullvalda ríkis á þessu landi, en að afsala ákveðnum fullveldis­réttindum í hendur erlendu lögreglu- og stjórnvaldi!

Er það þetta, meðal annars, sem stjórnmála­menn okkar, innan og utan ríkis­stjórnar, eru að sverma fyrir, þegar þeir eru hvað eftir annað að ámálga það og undirstrika, að breyta þurfi stjórnarskránni, t.d. með því að taka upp heimild til framsals ríkisvalds?!

Við höfum orðið mjög slæma reynslu af því Íslendingar í seinni tíð, að ráða­mönnum er ekki treystandi í sumum mestu þjóðar­hagsmuna­málum. Það átti t.d. bæði við um Icesave-málið, hina ólögmætu ESB-umsókn Össurar, fleiri stjórnar­skrárbrot og hugsan­lega stærstu banka-, skulda- og gjaldeyris­mál eftir hrun ekki síður en fyrir það.

Látum þessa menn vita, að þjóðin þarfnast ekki fullveldis­framsals í hendur þessu stórvelda­bandalagi handan Atlants­ála, sem veit varla, í hvorn fótinn það á að stíga í innflytjenda­málum, hefur reist sér risa­vaxna hurðarása um öxl og er komið með eigið regluverk í ónothæft ástand, eins og vitnað var til hér í bak og fyrir.

* Það var sjálfur for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Clau­de Juncker, sem sagði 25. nóv. sl. í ræðu í Evr­ópuþing­inu, að Schengen-svæðið væri „að hluta til í dauðadái,“ skv. fréttinni.

E.t.v. verður aukið við þessa færslu, er líður á daginn, því að mun meira bitastætt er í fréttargreininni sjálfri, m.a. um það tengda áform, að komið verði á fót strand­gæzlu Evr­ópu­sam­bands­ins sem sjái um landa­mæra­gæzlu á hafi úti -- smellið á tengilinn hér fyrir neðan!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Tekur ESB yfir landamæri Íslands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Samtök um rannsóknir á ESB ...

Menn gæti hér skilmála innleggja (efst t.v.): "Athugasemdir skrifist hér, vinsamlegast, undir fullu nafni, og gæti menn fyllstu kurteisi. Rakalaust persónuníð ekki liðið hér." Óskar nokkur átti hér firnagrófar persónuárásir á ríkisstjórnina í innleggi sínu, sem verður nú fjarlægt. Ekki bar hann þjóðhollustu sjálfs sín gott vitni, þegar hann hóf það ótrúlega ljóta innlegg á þessari almennu stefnuyfirlýsingu: "Bezt væri ef ESB tæki bara við stjórn á þessu landi." Ekki er á góðu von, þegar menn hugsa þannig!

Jón Valur Jensson.

Samtök um rannsóknir á ESB ..., 12.12.2015 kl. 11:27

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er of seint að byrgja bruninn eftir að barnið hefur dottið í bruninn.

Ísland misti fulveldið þegar að EES og Schengen samningarnir voru samþykktir á háttvirtu Alþingi í atkvæðagreiðslu.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 13.12.2015 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband