Fullveldishátíð

Þennan sjálfstæðisdag þjóðar­innar, 1. desember, verður Heims­sýn - hreyfing sjálf­stæðis­sinna í Evrópu­málum - með fullveldis­hátíð í Hótel Sögu, þ.e. kl. 20 í kvöld.
 
Endilega mætið, þetta eru notalega gefandi samkomur samherja í fullveldis­málum. Með í hátíðarhaldinu taka þátt félög ungra fullveldissinna: Ísafold og Herjann. Áhugasamir eru velkomnir á hátíðina og til að kynnast félögunum, störfum og stefnu samtakanna. Og eins og undibúningsnefndin segir: Heitt á könnunni og allir velkomnir!
 
Heimssýn hefur nú flutt aðsetur sitt og er skrifstofa samtakanna nú í Ármúla 6, 108 Reykjavík.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband