Gunn­ar Bragi bíður línunnar frá Brussel

Ut­an­rík­is­ráðherra seg­ir enn verið að "kort­leggja" hvernig bregðast eigi við viðskiptaþving­un­um Rúss­lands, klórar sér NÚ í hausnum yfir því, sem átti að liggja fyrir löngu áður!

Nú bíður hann og sam­ráðshóp­ur stjórn­valda og fulltrúa sjáv­ar­út­vegsins eft­ir því að starfs­menn Evr­ópu­sam­bands­ins komi úr sum­ar­fríi, svo að viðræður stjórn­valda og ESB um áhrif viðskiptaþving­ana geti haf­izt. Mbl.is sagði frá í dag.

Gunn­ar Bragi seg­ir að í viðræðunum verði farið fram á greiðan aðgang fyr­ir ís­lensk­ar sjáv­ar­af­urðir inn á Evr­ópu­markað. Hann býst við því að þess­ar viðræður hefj­ist fyrri hluta sept­em­ber­mánaðar. (Mbl.is)

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið! Viðræðunum gæti þá kannski með hrað­asta gangi lokið um 10.-15. september, þegar langt er liðið á makrílvertíðina. Ef ESB gefur sig að veita undanþágur frá 18% tolli sínum, geta menn þá stefnt skipum sínum úr höfn í von um hugsanlega seljanlegan afla. Þvílíkur snillingur, Gunnar Bragi, og afburða-tillitssamur um leið að láta segja sér, að á ýmsum skrifstofum þessa stórveldis sé enginn maður starfandi í 5-6 vikna sumarfríi!

Það verður ekki annað sagt en að þessi utanríkisráðherra sé einstaklega forsjáll og fyrirhyggjusamur!!!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Bíða eftir að ESB komi úr sumarfríi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú hvað styðja ekki allir ESB- sinnar mann eins og Gunnar Braga er fór sérstaklega til Úkraínu til þess eins að taka í höndina á fólki er kveikti í opinberum byggingum, kveikti í fólki, skaut á annað fólk og drap?

Auðvita vilja allir ESB sinnar styðja Neo-Nasista Right Sector og Svoboda gegn Rússneskumælandi fólki þarna í Austurhluta Úkraínu, nú hvað næst frá ESB og honum Gunnari Braga en Join the Nazi and Fasist -Party?

http://www.globalresearch.ca/there-are-no-neo.../5370269

Very Real Neo-Nazi Threat in Ukraine. A compilation of what mainstream media isn't showing. https://www.youtube.com/watch?v=pYjsCJwcPWk

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.8.2015 kl. 00:53

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gunnar má bíða eins og hann vill eftir vinunum,ef tilfinning mín fyrir þeim gjörningi er rétt. 

Helga Kristjánsdóttir, 25.8.2015 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband