Himin og haf ber á milli áherzlna utanríkismálanefndar (grunnforsendna ESB-umsóknar) og Evrópusambandsins

"Ef litið er á þær áherslur sem birtast í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar sem vegvísis um þær sérlausnir sem Ísland hefði farið frammá í sjávarútvegsmálum, ef sá kafli hefði verið opnaður, og þær bornar saman við áherslur Evrópusambandsins ætti að vera ljóst að himin og haf ber á milli,“ segir Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem sendi nýlega frá sér skýrslu um stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB.

Óraunsætt er að Ísland geti fengið varanlegar undanþágur frá reglum ESB á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar í aðildarviðræðum við sambandið. Þetta segir hinn sami Gunnar Haraldsson:

  • Gunnar var spurður að því hvort að raunsætt væri að hans mati að Ísland gæti fengið varanlegar undanþágur eða einhvers konar varanlegar sérlausnir frá reglum ESB á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar?
  • „Nei. Þrátt fyrir að tæknilega sé hægt að fá fram varanlegar sérlausnir í aðildarsamningi verður það að teljast mjög ólíklegt að slíkar undanþágur fáist, sérstaklega hvað varðar landbúnað og sjávarútvegsmál. Í því aðildarferli sem Ísland gengur í gegnum er áhersla lögð á aðlögun að reglum sambandsins en ekki á að veita undanþágur,“ segir Gunnar.
  • Spurður um umræðuna um mögulegar undanþágur og sérlausnir segir hann að þær undanþágur sem stundum sé vísað til í umræðu um þessi mál séu annaðhvort ekki varanlegar eða til komnar við allt aðrar aðstæður en nú ríki. „Eins og fram kemur í skýrslunni hafa engar undanþágur fengist í landbúnaði og sjávarútvegi í fortíðinni og með breyttum áherslum hjá Evrópusambandinu sjálfu verður það að teljast enn ólíklegra en áður að undanþágur fengjust á þeim sviðum. (Mbl.is)

Það er spurning hvort trúaðir ESB-inntökusinnar láti sér þetta að kenningu verða.

JVJ.

 


mbl.is Óraunsætt að undanþágur fáist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband