Formaður Samfylkingar er reiðubúinn að gefa ESB megnið af landhelginni og allt okkar æðsta löggjafarvald

Í viðtali og pistli boðar hann sína ESB-trú, en felur ofan­greind­ar stað­reynd­ir, gyllir samt orku­pakk­ann og evr­una* og "samvinnuna" sem felst í að vera fylgi­tungl Brussel-valds­ins, þar sem við fengj­um 0,06% áhrifa­vald í ESB-þinginu, en um 0,07% eftir útgöngu Breta -- sem hann minnist ekki á, því að sízt má nefna snöru í hengds manns húsi! -- vita­skuld kom Brexit ekki til af neinni al­mennri ánægju Breta með tilskipana- og reglu­gerða­bákn vald­frekra ESB-ráða­manna og emb­ættis­manna­hers í Brussel.

Og þrátt fyrir augljósa viðleitni Loga til ofurjákvæðni, þegar hann lítur til Evrópu, þá gleymir hann að nefna þá gleðifregn að utan, að nú mun Stóra-Bretland endur­heimta sín fiskimið að fullu!

Fiskiskip frá Evrópu­sambands­ríkjum (Spáni, Portúgal, Frakklandi, Belgíu, Þýzkalandi, Danmörku, Eystra­salts­ríkjum, jafnvel Ítalíu) fengju hins vegar að hefja veiðar allt upp að 12 mílna landhelgi okkar, en í samræmi við reglur hér um svæða­lokanir, möskva­stærð og veiðikvóta (þeir myndu rjúka upp í verði, en verða ESB-útgerðum aðgengi­legir, m.a. gegnum uppkaup útgerða). Æðsta ákvörðunar­vald um nefndar reglur (jafnvel allt niður í möskva­stærð) flyttist hins vegar frá íslenzkum stjórn­völdum til ESB-stjórnvalda.

Menn verða að átta sig á því, að sameiginlega sjávar­útvegs­stefnan í ESB felur í sér jafnan aðgang allra ESB-borgara að fiski­mið­un­um.** Það er ekki hægt að samrýma það með neinu móti varan­legum yfirráðum og einka-nytjarétti hinna einstöku þjóða að eigin fiskimiðum. Verjendur Evrópu­sambands­ins hafa hins vegar vísað til "reglunnar um hlutfalls­legan stöðugleika fiskveiða" hvers ESB-ríkis, byggðan á fiskisóknar- og afla­reynslu. En "reglan" sú er einungis tíma­bundið fyrirkomulag, breyti­legt og afleggj­an­legt í sjálfu sér, og ráðherraráð ESB hefur allt vald í þeim löggjaf­ar­efnum; við hefðum 0,07% atkvæða­vægi við slíka ákvörðun!

Er það eðlilegt að formaður íslenzks stjórnmálaflokks gerist undirlægja erlends valds og boði sem sitt fagnaðar­erindi innlimun okkar í valdfrekt stórveldi sem er á leiðinni með að koma sér upp stórum her? Er ímynduð hagnað­arvon honum meira virði en sjálfstæði Íslands?

* Um trú Loga á "aðgang­ að öfl­ugri og stöðugri mynt" í formi evrunnar segir í Staksteinum Mbl. í dag:

"Ef til dæm­is Grikk­ir læsu þetta teldu þeir vita­skuld að þarna færi formaður­inn með gam­an­mál. Svo er ekki. Logi trú­ir þessu."

Logi ímyndar sér, að upptaka evrunnar feli sjálfkrafa í sér lægstu vexti og afnám verðtryggingar. Svo er ekki, eins og sýnt hefur verið fram á. Vandkvæðin við að vera með gjaldmiðil sem hentar ekki sveiflukenndum þjóðartekjum sleppir hann alveg að nefna.

** Dæmi úr upplýsingatexta sem finna má gegnum þennan tengil (miklu meira þar):

  • "Jafn aðgangur að hafsvæðum og auðlindum hafsins er meg­in­regla í fiskveiði­stefnu Evrópu­sambandsins. Megin­reglan um jafnan aðgang (equal access) hefur gilt frá árinu 1970 þegar fyrsta reglugerð ESB um sjávar­útvegsmál var samþykkt."
  • "Við aðild Íslands að ESB yrðu fjárfestingar annarra ESB borgara og fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi heimilar. Ekki mætti mismuna erlendum aðilum í óhag, enda ættu allir að sitja við sama borð."
  • "Rétturinn til að búa, starfa og fjárfesta hvar sem er í Evrópusambandinu er grundvöllur samstarfs aðildarríkjanna og því gefst lítið svigrúm til að banna einstaklingum og fyrirtækjum að fjárfesta í sjávarútvegsfyrirtækjum annarra aðildarríkja."

Jón Valur Jensson. 


Bloggfærslur 2. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband