Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali við Ólaf Ragnar í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá alþjóðlegu fjár­mála­krepp­unni og banka­hruninu á Íslandi." HÉR má sjá myndband Stöðvar 2 með viðtali Þorbjarnar Þórðarsonar við forsetann fyrrverandi.

"Ólafur Ragnar var forseti Íslands frá 1996-2016 og var í mörg ár alþingismaður og ráðherra þar á undan. 

Á Ísland að standa áfram utan við ESB?
„Það hefur ávallt verið mín skoðun og það var ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að opinberlega og alþjóðlega lýsa þeirri skoðun þrátt fyrir að þáverandi ríkisstjórn hefði samþykkt aðild að Evrópusambandinu.

Á fyrstu árum mínum sem forseti fékk ég margar heimsóknir frá erlendum áhrifamönnum sem sögðu að Ísland þyrfti að ganga í Evrópusambandið þá, um síðustu aldamót, til að vera á undan Noregi. Til þess að við stæðum ekki uppi með það að Noregur væri búinn að móta sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins þegar við gengjum inn, ekki ef, heldur þegar.

Núna vita auðvitað allir að Noregur er ekkert á leið inn í Evrópu­sambandið og það munu örugglega líða áratugir þangað til, ef einhvern tímann það gerist.

Tony Blair hafði það sem meginþátt í sinni efnahagsstefnu á sínu fyrsta kjörtímabili að á öðru kjörtímabili myndi hann hafa forystu um það að Bretar gengju inn í evrusamstarfið.

Það myndu allir hlæja að slíkri tillögu í Bretlandi núna og það sem meira er þá er Bretland á leiðinni út úr Evrópusambandinu.

Þessar spár og þessi umræða, sem ég varð vitni að sjálfur á fyrstu árum mínum sem forseti, er auðvitað dæmi um það að þessir spádómar um að Evrópusambandið væri hin örugga framtíð og væri á beinni braut og allir yrðu að ganga þar inn ef þeir ætluðu sér að eiga einhverja sómasamlega framtíð, þetta hefur alltsaman reynst rangt. Þvert á móti sjáum við hér í Norður-Atlantshafi þar sem Íslendingar og Norðmenn hafa staðið utan, Grænlendingar og Færeyingar, öllum þessum þjóðum vegnar tiltölulega vel saman­borið við þær þjóðir sem eru á meginlandi Evrópu og glíma við þau gríðarlegu vandamál sem Evrópusambandið glímir við þar.

Þannig að ég á mjög bágt með að sjá það að einhver geti fært fram í dag einhverjar sannfærandi röksemdir fyrir því að af hverju, út frá íslenskum hagsmunum, við ættum að ganga í Evrópusambandið,“ segir Ólafur." (Visir.is)

Sjá má viðtalið við Ólaf í heild sinni HÉR