ESB-her verður til - staðreynd! Afleiðingarnar grafalvarlegar

Ekki þarf að efa að ESB-herinn verði til, enda vilji utan­ríkis­ráð­herra Þýzka­lands, þótt krati sé.

„Jafn­vel rödd Þjóðverja myndi ekki heyr­ast í al­þjóða­sam­fé­lag­inu ef við vær­um ein­ir á báti. Þess vegna þurf­um við sam­eig­in­lega evr­ópska rödd. Þannig verðum við hluti af alþjóðlega stjórn­mála­sviðinu. Við kunn­um að skipta máli efna­hags­lega en ekki stjórn­mála­lega án henn­ar,"

sagði Sigmar Gabriel, utan­ríkis­ráðherrann, í viðtali við Mbl.is í dag.

„Við verðum að skipu­leggja varn­ar­mál­in skref fyr­ir skref. Við mun­um ekki koma á evr­ópsk­um her á morg­un. Það sem er mögu­legt að koma á, til skemmri tíma litið, er nán­ara sam­starf á milli evr­ópskra herja. Það er al­ger­lega nauðsyn­legt að sam­ræma hernaðarget­una og her­ina. Það mun að lok­um leiða til evr­ópsks hers en það er annað eða þriðja skrefið,“

sagði ráðherr­ann orðrétt (leturbr. jvj).

Oft hafa Evrópusambands­sinnarnir hér á landi svarið af sér, að til stæði að stofna ESB-her, en þetta er sannar­lega inni í framtíðar­áætlunum bæði í Berlín og Brussel.

Athyglisverð er viðurkenning hans á dvínandi gengi Evrópuríkjanna:

"... við ætt­um að ein­beita okk­ur að stóru mál­un­um þar sem ein­stök ríki geta ekki staðið vörð um hags­muni íbúa sinna ein á báti. Sem dæmi fjölg­ar íbú­um Asíu, Banda­ríkj­anna og Afr­íku á meðan íbú­um Evr­ópu fækk­ar. Inn­an 10-20 árum munu börn­in okk­ar og barna­börn ein­ung­is hafa rödd á alþjóðavett­vangi ef það er sam­eig­in­leg evr­ópsk rödd,“

sagði hann. Ekki lýsir þetta mikilli tiltrú á að ríki geti staðið fyrir sínu án þess að vera í bandi með stórveldi ... já, einmitt, stórveldi sem leitt er af endur­sameinuðu Þýzkalandi. Gamli draumurinn að rætast?!

Og þessu verður meðal annast fylgt eftir með því að efla veldi ESB með öflugum her, miðstýrðum af þeim sem þar ráða! Falleg framtíðarsýn fyrir vinstri sinnuðu friðardúfurnar íslenzku?!

En tækist fullveldisframsals­mönnum að narra Íslendinga til að kjósa yfir sig Evrópusambandið, þarf ekki að spyrja að því, að einnig af okkur yrði ætlazt til framlags til þessa stóra hers, ef ekki í formi hermanna, þá í enn frekara formi álaga með framlögum af fjárlögum okkar, en ef ekki þannig í miklum mæli, þá með því að gera landið sjálft að vettvangi herstöðva og heræfinga ESB-hersins. Og þar hefðum við ekki síðasta orðið, það leiðir af sjálfu sér af almennum inntöku­skilmálum nýrra ríkja í þessu stóra ríkjasambandi.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Evrópuherinn kemur að lokum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunsætt mat: ESB og evran eru hér ekki á dagskrá!

Jafnvel Benedikt Jóhannesson viður­kennir á Kjarnanum, að það sé "ekki pólit­ískt ger­legt að ganga í Evrópu­sambandið og taka upp evru". Fylgi ESB-flokka er hverf­andi; því er þetta raun­sætt mat. En hann segir að "alþekkt sé að hann hafi þá skoðun að Íslandi yrði best borgið með því að ganga í Evrópu­sambandið og taka upp evru. Hinn pólitíski raun­veruleiki sé þó sá að það er ekki gerlegt sem stendur."

Eins gott að menn viðurkenni staðreyndir, en svíkist samt ekki aftan að þjóð­inni undir lok kjörtíma­bilsins, ef þessi veika stjórn, sem lafir á einum þingmanni, lifir svo lengi.

Svo lítils trausts nýtur þessi þriggja flokka ríkisstjórnar­samvinna, að lægðin í fylgi er orðin þvílík, að stjórnmálafræði-prófessorinn Ólafur Þ. Harðarson kveður upp úr um, að þess séu „engin dæmi um að ríkisstjórn sé komin niður í þriðjungs fylgi eftir hálft ár"!

Í nýjustu skoðanakönnun MMR mælist ríkisstjórnin með 30,3% fylgi. Og þar er fylgið einmitt einna lélegast í ESB-flokkunum Viðreisn með 5,5% og Bjartri framtíð sem á sér naumast bjarta framtíð með sín 2,9%. Samt þykist Óttarr Proppé enn geta talað eins og hann hafi umboð þjóðarinnar, þegar hann þennan nýliðna sunnudag boðar lokun Reykja­víkur­flugvallar, þrátt fyrir yfirgnæfandi fylgi bæði þjóðarinnar og höfuð­borgar­búa við að flug­völl­urinn verði hér til frambúðar. Hve blindir geta menn orðið á valdastóli?

Jón Valur Jensson.


Gildi fullveldis og sjálfstæðis, fyrir sjálf okkur og aðra. En með inngöngu í ESB myndi lagafargan þaðan u.þ.b. fimmfaldast!

Margir átta sig ekki á gildi full­veld­is fyrrr en seint og um síðir. En því áttum við sigra okkar í land­helgis­mál­inu að þakka og einnig í Ice­save-mál­inu. Í krafti þess rétt­um við Eystra­salts­þjóð­unum dýr­mæta hjálp­ar­hönd.*

Í dag hitti undir­rit­aður einn þýð­end­anna á ESB-til­skip­unum yfir á íslenzku. Þeir eru (í húsi austan við utanríkis­ráuneytið, við Þverholtið) þrjátíu talsins í fullu starfi og 20-25 að auki. En í stað þess að hafa 50-55 í starfi, meðan við erum að taka við EES-reglu­gerðum og tilskipunum, þá myndi þurfa að bæta við 200 þýðendum, ef við gengjum í Evrópu­sambandið, sagði hann. 250 manns bara við að þýða allt þetta texta- og pappírs­fargan á íslenzku og gera það að íslenzkum lögum og reglum!

NEI TAKK!

Lengi lifi minning Jóns Sigurðssonar, sem ritaði:

„Sumir af vorum helztu mönnum eru líka svo hræddir við sjálfsforræði landsins, að þeir eru eins og skepnan, sem varð hrædd við sína eigin mynd. En nú er það lífsmál fyrir vort land, að það hafi alla stjórnarathöfn sem næsta sér og hagkvæmasta, og þá stjórn, sem getur svo að kalla séð með eigin augum það sem hún á að ráða yfir, en ekki í speigli og ráðgátu, eða með annara augum, í 300 mílna fjarska. Þetta er krafa, sem oss virðist ekki maður geti sleppt, nema með því að óska sér að leggjast í dauðasvefn að nýju ...“ (Úr ritgerð Jóns, Um stjórnarmál Íslands, Ný félagsrit, XXII, 5, 1862; þarna notar hann orðið míla í merkingunni dönsk míla, 7532 metrar; 300 danskar mílur eru 1.220 sjómílur.)

* Sjá fréttartengil hér fyrir neðan. Ýmsan fróðleik er líka að finna á eftirfarandi vefslóðum undirritaðs:

1) Barátta fyrir endurheimt sjálfstæðis Litháens (16. júní 2013)

2) Til hamingju, Litháar, með ykkar 20 ára endurvakta sjálfstæði – en takið ekki þátt í að brjóta niður okkar fullveldi! (28. ágúst 2011)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Litháar segja „takk Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brexit verður eitt helzta vopn Theresu May á lokametrum baráttunnar vegna þingkosninganna

Mjög dró saman með Íhalds­flokki og Verka­manna­flokki í kapp­hlaupi síðustu daga vegna brezku þingkosninganna, komið niður í 3% mun. En Theresa May byrjar nú nýja baráttu, segir þjóðarhag mikilvægari en sjónvarps­kappræður.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.

Amid fears that negative attacks on Mr Corbyn are starting to backfire, Mrs May will switch to an upbeat message of a "brighter, fairer future for all" out of the EU. She will set out Tory plans to restore control over Britain’s borders, stop paying "huge sums" to the EU and end the jurisdiction of the European Court of Justice in the UK. (The Times 1. júní, í grein Francis Elliott, stjórnmálaritstjóra blaðsins: Have faith in me: Theresa May fights back with Brexit.)

Forsætisráðherrann þarf nú að verjast ásökunum um ýmist hroka (hubris and arrogance) eða hugleysi (political cowardice) eftir að hún neitaði að taka þátt í sjónvarpskappræðu með leiðtogum hinna flokkanna.

Svar hennar er m.a.: "I have said many times in the past — people can have faith in me because I have faith in them."

Fulltrúi May í kappræðunum var frú Amber Rudd innanríkisráðherra, en faðir hennar, 93 ára, lézt um síðustu helgi. Hún svaraði árásum frá öllum hliðum í kappræðunni, sem fram fór í Cambridge-háskóla: "Don´t give up on me ... Theresa May may not be here but I am and I hope to make a good fist [hnefa] of setting out Tory policy," og hún gaf lítið út á "the coalition of chaos" sem þar var mætt til að berjast við hana.

Mrs May had earlier claimed that the Labour leader was more interested in "appearances on the telly" [TV] than preparing for Brexit talks.

Boris Johnson this morning backed Mrs May in her decision not take part. The foreign secretary said her choice was "absolutely validated" because the debate turned into "a great yammering cacophony of voices (æpandi ósamræmi í söng þeirra) . . . most of them left-wing". (Grein Elliotts.)

Boris Johnson, utanríkisráðherrann, kvað upptökusalinn hafa verið fyllri af vinstri mönnum en lengi hefði sézt og varaði eins og Theresa May við þeirri upplausnarstjórn (coalition of chaos) undir leiðsögn Jeremys Corbyn, sem tekið gæti við með hjálp Skozka þjóðarflokksins og Frjálslyndra demókrata, ef Corbyn ætti að takast að mynda nýja ríkisstjórn. Þá fengi Corbyn hr. Tim Farron "gargandi eins og páfagauk á annarri öxlinni – og hvern á hinni? – Nicolu Sturgeon"! (en þetta eru leiðtogar hinna flokkanna).

Ein rúsína enn (og minnir þetta ekki aðeins á íslenzka RÚVið?):

Amid accusations that the BBC had chosen an audience with a left-wing bias for the debate, George Freeman, a policy chief for Mrs May, said that the group "was about as representative as the shadow cabinet".

En BBC hafnar því. Þó er vitað um langtíma vinstri-halla á þeim fjölmiðli, sem og ESB-vinahalla -- rétt eins og á Rúvinu!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Tapar Theresa May meirihluta sínum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband