Gildi fullveldis og sjálfstæðis, fyrir sjálf okkur og aðra. En með inngöngu í ESB myndi lagafargan þaðan u.þ.b. fimmfaldast!

Margir átta sig ekki á gildi full­veld­is fyrrr en seint og um síðir. En því áttum við sigra okkar í land­helgis­mál­inu að þakka og einnig í Ice­save-mál­inu. Í krafti þess rétt­um við Eystra­salts­þjóð­unum dýr­mæta hjálp­ar­hönd.*

Í dag hitti undir­rit­aður einn þýð­end­anna á ESB-til­skip­unum yfir á íslenzku. Þeir eru (í húsi austan við utanríkis­ráuneytið, við Þverholtið) þrjátíu talsins í fullu starfi og 20-25 að auki. En í stað þess að hafa 50-55 í starfi, meðan við erum að taka við EES-reglu­gerðum og tilskipunum, þá myndi þurfa að bæta við 200 þýðendum, ef við gengjum í Evrópu­sambandið, sagði hann. 250 manns bara við að þýða allt þetta texta- og pappírs­fargan á íslenzku og gera það að íslenzkum lögum og reglum!

NEI TAKK!

Lengi lifi minning Jóns Sigurðssonar, sem ritaði:

„Sumir af vorum helztu mönnum eru líka svo hræddir við sjálfsforræði landsins, að þeir eru eins og skepnan, sem varð hrædd við sína eigin mynd. En nú er það lífsmál fyrir vort land, að það hafi alla stjórnarathöfn sem næsta sér og hagkvæmasta, og þá stjórn, sem getur svo að kalla séð með eigin augum það sem hún á að ráða yfir, en ekki í speigli og ráðgátu, eða með annara augum, í 300 mílna fjarska. Þetta er krafa, sem oss virðist ekki maður geti sleppt, nema með því að óska sér að leggjast í dauðasvefn að nýju ...“ (Úr ritgerð Jóns, Um stjórnarmál Íslands, Ný félagsrit, XXII, 5, 1862; þarna notar hann orðið míla í merkingunni dönsk míla, 7532 metrar; 300 danskar mílur eru 1.220 sjómílur.)

* Sjá fréttartengil hér fyrir neðan. Ýmsan fróðleik er líka að finna á eftirfarandi vefslóðum undirritaðs:

1) Barátta fyrir endurheimt sjálfstæðis Litháens (16. júní 2013)

2) Til hamingju, Litháar, með ykkar 20 ára endurvakta sjálfstæði – en takið ekki þátt í að brjóta niður okkar fullveldi! (28. ágúst 2011)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Litháar segja „takk Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband