Endurspeglar ný könnun yfirburði fullveldissinna?

Útvarp Saga er með nýja aðferð skoð­ana­kann­ana, sem á að koma betur í veg fyrir ítrek­uð inn­legg sama manns/sömu fjöl­skyldu. Þar var að birt­ast niður­staða sem gefur Davíð Odds­syni mikla yfir­burði yfir Guðna Jóhannes­son.

Reyndar var einkum leitað eftir afstöðu þátt­takenda til þessara tveggja manna, þótt einnig væri hægt að velja þriðja val­kostinn. Spurt var (1.-2. júní): Hvern ætlar þú að kjósa sem for­seta Íslands? Gátu menn þá valið:

  • Davíð Oddsson.
  • Guðna Jóhannesson.
  • Einhvern annan.

Niðurstaðan varð, að Davíð fekk 53,9% atkvæða, Guðni Th. 22,6%, og litlu færri fekk "einhver annar" valkostur: 22,3%.

Þetta er ekki í samræmi við ýmsar kannanir Gallup, MMR, Fréttablaðsins og Félagsvísindastofnunar HÍ, en raunar er vitað, að Davíð hefur verið í uppsveiflu, nær 1% á dag að meðaltali, en Guðni á niðurleið. En á vef Útvarps Sögu er þetta þó önnur könnunin sem sýnir yfirburði Davíðs. Fór sú fyrri fram 27.-30. maí, og þar voru allir frambjóðendurnir níu nafngreindir, en Davíð náði þar 39%, Sturla Jónsson 30,1%, Guðni 21,1%, Halla 3,7% og Andri Snær 3,2%. (Sjá nánar hér: Fyrsta skoðanakönnun sem sýnir DAVÍÐ ODDSSON efstan í forsetakjöri.) Þetta segir ekkert til um afstöðu þjóðarinnar, miklu fremur ákveðins hlustendahóps, þar sem menn taka sjálfir ákvörðun um þátttöku í skoðanakönnun, en á Útvarpi Sögu hefur Sturla þessi vörubílstjóri fengið margra ára góða kynningu vegna framlags hans til ýmissar umræðu.

En yfirburðir Davíðs í nýrri könnuninni er allnokkuð í þá átt að vera í samræmi við könnun MMR vorið 2015 þar sem spurt var hvort kjósendur vildu láta breyta stjórnarskránni þannig, að Alþingi verði heimilað að fram­selja hluta íslenzks ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana. Niður­staðan var sú, að einungis 14% voru því hlynntir, en 69% andvígir, sjá nánar hér: Nær fimm sinnum fleiri andvígir framsali hluta íslenzks ríkisvalds en hlynntir!

Þá er þess að geta, að MJÖG hlynntir "aðild" að Evrópusambandinu eru bara 9,5% landsmanna skv. nýlegri könnun MMR birtri fyrir miðjan maí, en MJÖG andvígir eru 31,7%, meira en þrefalt fleiri. Þess vegna er þeim mun furðu­legra að Guðni Th. Jóhannesson ljái máls á því að Ísland verði partur af þessu stórveldi og nefni ranglega sem "kost", að þá getum við losnað við krónuna! ––Sjá hér: Guðni Th. Jóhannesson er ekki einarður verjandi landsréttinda.

Jón Valur Jensson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Jón Valur.

Ég náði ekki að svara spurningu þinni við athugasemd á fyrra bloggi þínu, um skoðanakannanir.

Það "próf" sem ég nefni í þeirri athugasemd var samið af ruv og gekk á samfélagsmiðlum. Þar gat maður svarað ýmsum spurningum og kom þá niðurstaða um hver frambjóðandi hentaði best við svörin hjá manni, uppraðað í prósentum.

Til gamans þá tók ég þetta próf nokkrum sinnum og svaraði aldrei sömu spurningu eins og áður. Það merkilega var að alltaf kom sami frambjóðandinn efstur, oftast með um 70% fylgni við mín svör!

Einum frambjóðanda var haldið utan þessa prófs. Sjálfur hef ég ekki mikla trú á fréttstofu ruv, en hver sá sem hana hefur ætti að efast þegar slík vinnubrögð eru notuð.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 2.6.2016 kl. 12:56

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Athyglisvert, Gunnar! Heilar þakkir.

Jón Valur Jensson, 2.6.2016 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband