Brussel verður innan 20 ára að meirihluta múslimsk borg með sterkum áhrifum sjaríalaga

Staðreynd um höfuðvígi ESB! Straumur flóttamanna eykur líkurnar, en þarf ekki til, svo mikil er tímgun múslima í Belgíu. CBN News lýsa ástandi og horfum. Í Brussel eru múslimar stærsta trúfélagið, í Antwerpen eru þeir færri, en eru þó með 40% barna í skólum þar.

Í þættinum ískyggilega er rætt við ímam, Abu Imram (leiðtoga hinna róttæku samtaka "Sjaría fyrir Belgíu") sem telur með öðrum, að 2030 verði múslimar jafnvel komnir í meirihluta í Belgíu. Ungur fræðimaður þar, belgískur, Sam van Rooy, er mjög svartsýnn á útlitið og hyggur æ fleiri Belga munu flytjast frá Brussel, og það eigi bara eftir að flýta fyrir þessari þróun - eða öfugþróun.

Ímaminn, sem rætt er við í þættinum, lítur á "lýðræðissinnaða múslima" sem sjálfsmótsögn á borð við "kristinn Gyðing" eða "múslima sem er Gyðingatrúar". Hann og félagar hans boða sjaríalög, ráðast með orðum og truflunum á hægfara múslima og eru sigurvissir um framtíðina, þetta sé bara spurning um tíma. Ímaminn storkar hinum kristnu: þeir geti ekki snúið við þessari þróun, til þess þyrftu þeir að fá sér fjórar konur hver, en ekki kvaðst hann sjá fyrir sér, að þeir færu þá leið!

Hvort eða hvernig þessi fólksfjöldaþróun muni hafa áhrif á miðstöð stjórnvalda í Evrópusambandinu verður framtíðin að skera úr um, en í Brussel eru flestar skrifstofurnar og stofnanirnar og m.a. fundarstaðir framkvæmdastjórnarinnar (e.k. ríkisstjórnar ESB, með stjórnvaldið), ráðherraráðsins volduga (hefur löggjafarvald) og að hluta ESB-þingsins, sem einnig starfar í Strassborg.

Verði ESB áfram með miðstöð sína þarna, munu múslimar bætast sterkt inn í hina fjölmennu þrýstihópa sem vinna að sínum málum gagnvart ESB í Brussel, og þá gætu múslimar náð þar auknum áhrifum, ekki hvað sízt ef Tyrkland bætist í hóp meðlimaríkja og verður fljótt það fjölmennasta.

Eins er hægt að sjá fyrir sér, að Evópusambandið neyðist til að flytja höfuð­stöðvar sínar til Berlínar, þar sem valdamiðja sambandsins er nú þegar í veigamiklum atriðum stefnumótunar.

Hér fyrir neðan er tengill (smellið!) á mjög efnismikla og að mörgu leyti átakanlega grein Guðrúnar Hálfdánardóttur, blaðamanns á Morgunblaðinu, um flóttamannavandamálið í vídd og breidd þess í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Þar kemur m.a. fram, að Sýrland á nál. 49% af 90 prósentum þeirra flótta­manna sem komið hafa bátaleiðina yfir Miðjarðar- eða Eyjahaf, Afganistan um 21% þeirra og Írak um 8%, en 11% samanlagt koma frá Erítreu, Pakistan, Nígeríu, Sómalíu og Súdan.

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Hvað er heima?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband