Góð samkoma Heimssýnarfólks

Góður var fundurinn í Heimssýn, samtökum sjálfstæðissinna í Evrópumálum, að kveldi 1. desember, og er full ástæða til að hvetja sem flesta til að sækja þær öflugu samkomur. Dr. Atli Harðarson flutti aðalerindi kvöldsins, einnig töluðu Jón Bjarnason og Halldóra Hjaltadóttir, auk þriggja söngsveita sem héldu uppi afar góðri stemmingu sem endaði loks með fjöldasöng. Fríar veitingar voru á staðnum að vanda. Þollý Rósmundsdóttir var fundarstjóri og aðalskipuleggjandi þessarar samkomu sem tókst með þvílíkum ágætum.  ––jvj.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Heimurinn verður aldri betri en kærleiksrík hugsjón heilags anda hvers og eins.

Hollur er heimafenginn baggi, segir gamalt og gott viskumáltæki.

Heimafenginn baggi er ekki bara veraldlegur. Andlegi heimanfengi bagginn er öflugri, heldur en áþreifanlegi drasl-veraldlegi bagginn. Á andlega styrknum og kærleikanum byggist friður og kærleikur framtíðarinnar. Án friðar og kærleika er jarðlífið glatað.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.12.2014 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband