Mikil aukning á mansali innan ESB!

  • Talið er að það hafi aukist verulega á undanförnum árum. Aðallega er um að ræða mansal á ungum stúlkum og konum sem seldar eru til vændis. 
  • Evópusambandið telur að megnið af þessum stúlkum og konum komi frá löndum innan sambandsins. Áður fyrr var þetta mansal hinsvegar að mestu bundið við fólk sem flutt var inn til Evrópusambandsins frá löndum utan þess. (Visir.is, 7. maí 2012.)

Evrópusambandið er sem sé að verða sjálfbært á þessu vafasama sviði!

En án skops er merkilegt, að sjálft eftirlitssamfélagið mikla, ESB, hefur ekki einu sinni taumhald á þrælahaldi. Mansal er ekkert annað en þrælasala og þrælahald og í þessu tilviki er það með mestu niðurlægingu kvenna, með sálrænum örum ævina á enda.

Ef lausn þessa þrælahalds er ekki á forgangslista, hvað er þá forgangsmál hjá ESB? Af hverju versnar ástandið í stað þess að batna í viðleitninni til að nálgast hina fullkomnu útópíu?

Jón Valur Jensson. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þetta er ekki gott, en kemur ekki á óvart.

Sama á reyndar líka við um mörg fleiri vandamál innan ESB/EVRU svæðisins, svo sem:

1. Fátækt hefur stóraukist undanfarin ár

2. Atvinnuleysi hefur einnig stóraukist.

3. Svo þetta með mansal og aðra glæpi reyndar líka.

Það er nefnilega ekki nóg að möppudýrin í Brussel þykist leysa öll mannleg vandamál á pappírunum einum saman og gera rándýrar og uppskrúfaðar 5 og 10 ára glans áætlanir um það og gefi síðan út einhverjar tilskipanir sem enginn hlustar á !

Þetta lið lifir í fílabeins turni, sýndarmennsku valds og spillingar !

Gunnlaugur I., 8.5.2012 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband