Eindreginn meirihluti vill Ísland utan Evrópusambandsins

Enn ein skoðanakönnun (allar frá júlí 2009) sýnir mikinn meiri­hluta lands­manna and­vígan því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið. 59,8% eru and­víg, en 40,2% hlynnt, en langt­um ákveðnari er þó nei-hópurinn: „ör­ugg­lega“ á móti inn­göngu eru 41,1%, en aðeins segjast 15,6% ör­ugg­lega hlynnt inn­göngu, sam­kvæmt niður­stöðum skoðana­könn­unar­ sem nú var birt og Gallup gerði þó fyr­ir sam­tök­in "Já Ísland" (!) sem berjast fyrir inn­göngu í Evrópusam­bandið og hafa notið stuðn­ings þessa tröllslega bandalags í þeirri baráttu.

Sjálft nafn samtakanna er öfugmæli -- það eru ekki samtök sem munu fagna 100 ára fullveldi Íslands 1. desember 1918, heldur vilja það feigt. Og leiðtogar þeirra samtaka (hver eftir annan) sitja nú í ríkisstjórn Íslands og bíða þess, vonandi, að þjóðin skipti þeim út eftir 12 daga!

Nánar síðar. -JVJ.


mbl.is Mikill meirihluti vill ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. október 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband