27.8.2015 | 16:19
Ánægjufrétt síðustu viku: "Evrópustofu" verður lokað 1. september
Það styttist í lokun hennar: eftir 5 daga! Fréttin kom á vefsíðu áróðursstofunnar; rekstrarsamningur hennar rennur út í lok ágúst. Hún hefur nú spanderað hér hundruðum milljóna frá ársbyrjun 2012 ...
"í tengslum við umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið. Rekstur hennar hafði áður verið boðinn út og í kjölfarið samið við íslenska almannatengslafyrirtækið Athygli og þýska almannatengslafyrirtækið Media Consulta. Athygli sagði sig frá verkefninu á síðasta ári og var öllum starfsmönnum Evrópustofu sagt upp störfum. Media Consulta hefur síðan eitt séð um reksturinn." (Mbl.is)
Hér skal tekið undir hvatningu um, að birtir verði reikningar um útgjöld þessarar rangnefndu "Evrópustofu" (Evrópusambands-áróðursstofa er hún). Til hverra fóru greiðslur, til hvaða samtaka og einstaklinga og til hvaða áróðursverkefna og auglýsinga? Krafan er eðlileg. Þetta er geipilegt fé í heildina talið:
Samningurinn um rekstur Evrópustofu var til tveggja ára með fjárframlagi upp á allt að 1,4 milljónir evra eða rúmlega 200 milljónir króna. Samkvæmt samningnum var heimilt að framlengja hann um tvö ár til viðbótar. Það er fram á þetta ár. (Mbl.is)
Íslenzk stjórnvöld höfðu lýst þeirri stefnu sinni, að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu, og þótt því hafi verið tekið seinlega og af ólund í Brussel (auk þess sem utanríkisráðherrann hefur ekki beitt sér af styrk í málinu), þá var "tekin ... ákvörðun um það af hálfu Evrópusambandsins að bjóða rekstur Evrópustofu ekki út á nýjan leik" (Mbl.is). Vonandi verða það endalokin á ásælni þessa stórveldabandalags á hendur okkur.
Jón Valur Jensson.
Evrópustofu lokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.8.2015 | 04:15
Af yfirgangi valdfrekra
"Ég minnist þess einnig þegar Evrópusambandið tók sér lögregluvald og rak fulltrúa okkar á dyr af sameiginlegum fundi strandríkja sem veiddu makríl."
Þetta er enn eitt dæmi um yfirgang Evrópusambandsins gagnvart Íslendingum. Jón Bjarnason fyrrv. sjávarútvgsáðherra, ritaði þssi orð í fróðlegri grein sem menn ættu að lesa og er hér: Svartur sjór af makríl í íslenskri lögsögu.
JVJ.
Fiskveiðar, sjávarútvegur | Breytt s.d. kl. 04:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)