Vilja að Pólverjum verði ekki refsað af ESB

Ungversk yfirvöld ætla ekki að líða það að Evrópusambandið beiti Pólverja þving­unum vegna breyt­ingar á lögum þar í dóms­mál­um. Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ungverja­lands, heitir því að koma Pólverjum til varnar gegn íhlutun Evrópu­sam­bands­ins. Pólverjar telja sig vera að vinna gegn spillingu sem verið hafi í dómskerfinu, og öldungadeild þingsins þar hefur samþykkt laga­frum­varpið sem felur í sér að allir núverandi dómarar verði settir af og að dóms­mála­ráðherra velji dómara í þeirra stað. Vitaskuld er málið umdeilt, en Ungverjar vilja þó ekki, að Pólverjum verði refsað með því að svipta þá atkvæðis­rétti í ESB.

„Það er í hag Evr­óp­u og í anda vina­banda Pól­lands og Ung­verja­lands að her­ferðin gegn Póllandi gangi ekki eft­ir [...] Ung­verj­ar munu beita öll­um mögu­leg­um laga­úr­ræðum til þess að sýna sam­stöðu með Pól­verj­um.“ (Mbl.is, úr ræðu Or­bans sem hann flutti við há­skóla í Trans­sylvan­íu.)

Nánar má lesa um þetta í frétt Mbl.is hér fyrir neðan.

JVJ.


mbl.is Orban kemur Pólverjum til varnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgi ESB-sinna er mjög veikt

62,3% eru and­víg inn­göngu í ESB og 37,7% hlynnt, í nýjustu könnun MMR, þegar taldir eru þeir sem afstöðu tóku. Enn hærra er hlutfall þeirra sem eru mjög and­víg­ir inn­göngu (31,7%) miðað við hina sem eru mjög hlynntir henni (11,3%). Sem sé: Rúmlega helmingur þeirra, sem eru andvígir inngöngu landsins í stórveldið, eru MJÖG andvígir henni, en langt innan við þriðjung þeirra, sem eru hlynntir, eru MJÖG hlynntir inngöngu.

Fleiri hafa verið and­víg­ir inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið en hlynnt­ir í öll­um skoðana­könn­un­um sem birt­ar hafa verið hér á landi und­an­far­in átta ár eða frá því sum­arið 2009, hvort sem kann­an­irn­ar hafa verið gerðar af Gallup, MMR, Fé­lags­vís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands eða öðrum [...] Þá vek­ur at­hygli að þris­var sinn­um á und­an­förn­um mánuðum hef­ur MMR mælt þá sem hlynnt­ir hafa verið því að ganga í sam­bandið færri en þá sem ekki tekið af­stöðu með eða á móti. (Hjörtur J. Guðmundsson á Mbl.is.)

Þrátt fyrir þennan mikla mun er engin ástæða til að láta deigan síga í baráttu fyrir því, að Alþingi lýsi formlega yfir, að Össurar­umsóknin svokallaða, frá 2009, verði afturkölluð, enda gekk hún gegn sjálfri stjórnar­skránni. Að hafa hana enn í skúffu hjá býró­krötunum í Brussel er okkur til hneisu, og þótt Gunnar Bragi Sveinsson hafi stærilátur sent bréf þangað, veit hann að það er ekkert mark tekið á því. Það gefur honum ekki ástæðu til stærilætis, að í því máli var hann af hræðslugæðum eða í meðvirkni að láta undan sameinaðri áróðurssókn ESB-Fréttablaðsins, fréttastofu Rúv, sem vinnur í málinu gegn hagsmunum þjóðarinnar, og ýmissa stjórnar­andstöðu­manna, þegar þetta mál var í umræðu og fundað um það á Austurvelli fyrir fáeinum árum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Fleiri á móti inngöngu í átta ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið með Evrópusambands-áróður, vísar til meintra mistaka með Brexit, á sama tíma og Trump væntir stórkostlegs samnings USA við UK!

Í 2. sinn á stuttum tíma er aðal­ritstjóri Fréttablaðsins, Kristín Þor­steins­dóttir, með eindreginn áróður fyrir Evrópu­sam­band­ið og aðild Íslands að því; öðru­vísi verða orð hennar undir lok leiðara í dag naumast skilin.

Út frá einni skoðana­könnun: "að 60% kjós­enda vilji endur­skoða afstöð­una sem birtist í atkvæða­greiðslunni í fyrrasumar" (nokkuð sem felur þó ekki sjálfkrafa í sér eindreginn vilja til að verða áfram í ESB) leyfir hún sér að fullyrða, að "langflestir" séu "sannfærðir um að Brexit sé Bretum ekki í hag." Þetta er of djörf staðhæfing, og skoðana­kannanir eiga það líka til að breytast skjótt eftir ríkjandi vindum hverju sinni, í fjölmiðlum og stjórnmálum

Ekki ber Kristín það við að líta neitt til umræðunnar um þann jákvæða ávinning sem blasir við Bretum að endurheimta að fullu sína fiskveiðilögsögu eftir úrsögnina. Hefði ritstjórinn þó vitaskuld átt að minnast á það, úr því að hún er að nota þarna tækifærið til að predika yfir Íslendingum að tímabært sé að athuga meinta kosti ESB-aðildar. En sú aðild myndi rústa fullveldis­réttindum okkar á hafinu og gera okkur skylt að meðtaka ALLA Evrópu­sambands­löggjöf hér eftir sem bindandi. Vill Kristín það í alvöru?

Þar að auki er þunnur hljómur í evru-meðmælum hennar vegna sterkrar krónu. Fróðari menn mæla eindregið gegn upptöku evru hér.

Svo hefur ritstjórinn naumast heyrt nýjustu fréttir þegar hún skilaði af sér leiðaranum, því að þar, á hennar eigin Vísi.is, er þessi frétt í dag: Trump segir stórkostlegan viðskiptasamning við Breta í bígerð. (Sjá einnig Mbl.is-tengil hér fyrir neðan.) Varla hefur þetta þau áhrif að veikja stöðu Bretlands í efna­hags­lífi heimsins!

Theresa May og Donald Trump takast hér í hendur á fundinum í dag.Theresa May og Donald Trump takast hér í hendur á fundinum í dag. 

* Sjá einnig blogg Heimssýnar: ESB leiddi hörmungar fyrir fiskiðnað í Bretlandi. Nú ná Bretar aftur miðunum 

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Trump á von á mjög öflugum samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband