Fullveldis-andstæður flokkur, "Björt framtíð", þjónar evrópsku stórveldi

Þing­menn Bjartr­ar framtíðar afhjúpa sig nú með enn frekari hætti sem þægar eða fjar­stýrð­ar jarð­ýtur í þágu inn­limunar í Evr­ópu­sam­band­ið. Áhugi þeirra á þjóðar­atkvæði um að "frek­ari skref verði tek­in í átt að inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið" birtist á ný í formi frum­varps "til breyt­inga á lög­um um fram­kvæmd þjóðar­at­kvæðagreiðsla, þess efn­is að heim­ilt verði að víkja frá ákvæðum lag­anna um þriggja mánaða lág­marks­frest áður en þjóðar­at­kvæði fer fram, ef mögu­legt er að það fari fram sam­hliða al­menn­um kosn­ing­um inn­an þess tíma." Fyrsti flutn­ings­maður er Páll Val­ur Björns­son, þingmaður flokks­ins.

Í frum­varpinu er látið sem "aug­ljós þjóðhags­leg rök" mæli með því, "enda hleyp­ur kostnaður sam­fé­lags­ins af sjálf­stæðri þjóðar­at­kvæðagreiðslu á hundr­uðum millj­óna króna sem með þess­um hætti mætti spara."

Þetta sama "sparn­aðar-sjónarmið" heyrðist í öðru ekki síður þungvægu meginmáli: þegar Jóhönnu­stjórn vildi sniðganga samhljóða úrskurð fullskipaðs Hæstaréttar um að kosningin til stjórnlaga­þings hefði reynzt stórgölluð og ógild. Þá vildu forystu­menn vinstri flokkanna ekki hlíta lögum (um stjórnlagaþing og kosningar) með því að endurtaka kosningu til stjórnlagaþings, létu sem þeir þyrftu að spara peninga fyrir þjóðina með því að sleppa kosningunni, ákváðu í staðinn að fara fram hjá lögum og úrskurði Hæstarréttar með því að bjóða 25 manns, sem höfðu verið sviptir kjörbréfum sínum og höfðu ekkert umboð kjósenda, að "stjórnlagaráðsmönnum" -- og létu gott heita, að einungis 30 þingmenn stóðu að þeirri ólöglegu þingsályktunartillögu sem mælti fyrir um skipan stjórnlagaráðs!

Frumvarpsmennirnir sex í þessu nýja máli treysta því augljóslega ekki, að landslýðurinn hafi mikinn áhuga á þessar þjóðaratkvæðagreiðslu þeirra, ekki nægan til að fá marga á kjörstað, sbr. fámennið, 48,9%, sem greiddi atkvæði um "nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs"; en hér yrði þó um enn fásóttari atkvæðagreiðslu að ræða. Þess vegna telja þessir frumvarpsmenn,* þörf á því að finna sér gulrót til að trekkja fólk á kjörstað og að einfaldast sé (af því að þeir eigi líka í sinni ESB-þörf rétt á því að fara fram hjá reglum) að halda kosninguna bara samhliða alþingiskosningum, sem sé miklu fyrr en þeirra eigin fyrri frumvarpsákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur hefðu heimilað! Þess vegna segja þau í hræsnisfullu lýðskrumi sínu: "Jafn­framt liggja lýðræðis­leg rök að baki fyr­ir­komu­lag­inu þar sem lík­urn­ar á góðri kjör­sókn í þjóðar­at­kvæðagreiðslu aukast fari hún fram sam­hliða al­menn­um kosn­ing­um." Og svo bæta þau við, að ekki þurfi að hafa áhyggj­ur af því að þing­menn mis­noti sér slíkt ákvæði -- einmitt þegar þau gefa sjálf dæmi um slíka misnotkun!

Án efa verður þetta frumvarp litið hýru auga af útsendurum Evrópu­sam­bands­ins hér á landi, sem hugsanlega hafa líka verið ráðgjafar frumvarpsaðila. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er ESB-maðurinn Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, meðlimur öfugmælasamtakanna "Já Ísland!". Allir hinir fimm flutningsmennirnir eru úr "Bjartri framtíð" og spurning hvort sá visnandi flokkur er að búast við fjárstyrk frá Evrópusambandinu fyrir þessar hugsanlega síðustu alþingiskosningar sem þeir eiga völ á. Vitað er, að mörg félög og samtök víla ekki fyrir sér að þiggja háar fjárupphæðir, sem Brusselmenn hafa fiskað upp úr vösum skattgreiðenda í Evrópu.

* En meðal hinna flutningsmannanna í sex manna flokknum er t.d. Bryn­hild­ur Pét­urs­dótt­ir í nefndum öfugmælasamtökum, "Já Ísland!", einnig Guðmund­ur Stein­gríms­son (sem er að hverfa af þingi) og Ótt­arr Proppé. Einungis tveir af þessum BF-þingmönnum, Björt Ólafs­dótt­ir og Ró­bert Mars­hall, eru ekki meðlimir öfugmælasamtakanna.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Víkja megi frá lágmarksfresti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig dettur þessum mönnum í hug að bjóða sig fram til þings?

Ólíkt Jóni Baldvini* vilja Þor­steinn Víglundsson og Pawel Bartoszek ganga inn í "brennandi hús" Evrópusambandsins!

Ekki er það til að tryggja lýðveldið í sessi sem sjálfstætt og fullvalda.

Þeir, sem heita vilja hollustu sinni framandi heimsveldi 27 ríkja með um 1400 sinnum fleiri íbúa en Íslendinga ættu fremur að flytjast til meginlandsins en að voga sér að leita stuðnings íslenzkra kjósenda við að þeir taki sæti á Alþingi til að brjála löggjöf okkar í þágu þess tröllaukna veldis.

Báðir eru þessir menn á skrá um félagsmenn öfugmælasamtakanna "Já Ísland!"

En okkar fyrrverandi utanríkisráðherra og Alþýðuflokks-formaður Jón Baldvin hefur lengri reynslu af Evrópusambandinu en samanlagðir þessir tveir yngri menn með glýjuna í augum. 

  • "Þegar ég horfi á Evrópu núna sé ég Evrópu­samband sem er nánast í sjálfs­morðs­leið­angri ... og allt þar í rugli. Frammistaða ESB núna sýnir algert póli­tískt forystu­leysi, alltaf viðbrögð eftir á og skammar­lega lítil­mennsku. Við göngum ekki inn í brenn­andi hús núna. Slökkvið fyrst eldana,“

sagði Jón Baldvin Hanni­bals­son í viðtali á Morgunvaktinni á Rúv snemma í marz í vetur, sem birti þar viðtal Óðins Jónssonar við hann.

Er ekki tímabært að grillufangarar um evrópska útópíu fari að læknast af þeim órum sínum? Og hvernig væri að þeir fengju að mæta hörðum spurningum fundarmanna og fréttamanna á áróðursfundum "Viðreisnar" vegna þeirrar stefnu að ætla sér að gera Alþingi að undirþingi ESB-stofnana? Til hvers vorum við þá að berjast fyrir sjálfstæði lands og þjóðar? Jafnvel Dönum er fullljóst að æðsta fullveldi yfir þeim er komið í hendur Brussel-herra.

Vita þessir tveir ekki, að í sérhvert sinn sem einhver lög ESB rekast á einhver landslög meðlimaríkjanna, þá skuli landslögin víkja, en ESB-lögin ríkja?  En þetta stendur í sérhverjum aðildarsáttmála sem gerður hefur verið við hvert nýtt ESB-land í meira en tvo áratugi. Já, hvers vegna ekki að halda sér við sjálfstæði landsins og fullveldi? Eða ætlar einhver að kjósa skósveina eða erindreka erlends valds?

* Jón Baldvin Hannibalsson afhuga Evrópu­samband­inu: "Það þýðir ekkert að tala um að ganga inn í brenn­andi hús!"

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þorsteinn í framboð fyrir Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geðþekkur maður er ekki endilega tilvalinn alþingismaður

Pawel Bartoszek, lengi "hlynnt­ur inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið", gengur nú í Viðreisn, um leið og hann segir sig úr Sjálf­stæðis­flokki. Hann var einn margra ESB-manna sem kyngdu þeirri ósvinnu að taka sæti í ólög­legu "stjórn­laga­ráði", eftir að kosning 25 manna til stjórn­laga­þings var ógilt að fullu og öllu af Hæsta­rétti og kjörbréf þeirra aftur­kölluð af yfir­kjörstjórn. Hann var þar með reiðubúinn að láta tilganginn helga meðalið til að fá að freista þess að ráða einhverju um þá stjórnar­skrá Íslands, sem hann vanvirti í raun með því að óvirða úrskurð fullskipaðs Hæstaréttar.

Pawel sýndi eftir á, að hann var ekki sammála 24 félögum sínum í ólögmæta ráðinu um allt, og manninum er ekki alls varnað um ýmsar forréttinda­skoðanir sínar, sem hann hefur fengið mikið rými til að kynna í greinum og bakþönkum í Fréttablaðinu.

En kjörinn er hann ekki fremur en aðrir frambjóðendur "Viðreisnar" til að vinna af heilindum að því að efla Ísland og styrkja rétt þess í samfélagi þjóðanna. Allir þjónar Evrópu­sambandsins, í orði eða borði, eru í sjálfum sér af þeirri ástæðu einni vanhæfir til setu á þjóðþingi Íslendinga, rétt eins og Pawel var vanhæfur til að véla um stjórnarskrá Íslands fyrir nokkrum misserum.

Enginn, sem vill gera Alþingi að undirþingi Evrópu­sambandsins og gefa því síðastnefnda æðstu völd hér í laga- og dómsmálum, þar sem í milli ber um landslög og laga­gerninga póten­tátanna í Brussel, getur talizt hæfur til fundar­setu á því löggjafar­þingi, sem svo lengi mótaðist af anda frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Pawel gengur til liðs við Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsendulausar haustkosningar

Eftir Jón Steinar Ragnars­son  

Nú hefur verið boðað af fjár­mála­ráð­herra (í hvers um­boði er óljóst) að kosn­ingar fari fram 29. októ­ber að því gefnu að ekki verði upp­lausn á þing­inu. Þetta er furðu­leg yfir­lýsing og ekki í neinu sam­ræmi við þær for­sendur sem stjórn­ar­skrá mælir um.

Ekkert vantraust á stjórn­ina hefur verið samþykkt og engar forsendur um það að stjórnar­samstarfið sé komið í hnút. Forsætis­ráðherra hefur ekki gefið neina yfir­lýsingu enn og engar viðræður bornar undir forseta lýðveldisins.

Það er áhyggjuefni að hægt sé að gera slíkt af álíka léttúð, eins og það sé duttlungum háð að rjúfa þing og boða til kosninga.

Bjarni segir að fyrirvari sé á þessu ef ágrein­ingur og upp­lausn verði er setji vinnu­frið þingsins í uppnám. Það sem raun er að gerast er að Bjarni er að fara á svig við stjórnar­skrárbundið ferli undir hótunum frá málefna­lausri stjórnar­andstöðu um að eyði­leggja þingstörf ef hún fær ekki sínu fram um kosningar og þingrof. Það er ásteytingarsteinninn. 

Stjórnlausar frekjur eins og Svandís Svavarsdóttir virðast nú hafa fengið forsetavald eða einræðisvald með hótunum um skemmdarverk, upplausn og stjórnarkreppu. Ég spyr: Er ekki allt í lagi? Er ég mitt í episódu af Twilight Zone?

Hverjar eru forsendur stjórnar­slita? Hvar er van­traustið? Hvað ætlar nýkjörinn forseti að gera? Mun hann bera málið undir lögfróða og akta samkvæmt því eða ætlar hann að taka afstöðu út frá hlut­drægu mati, þar sem hann er sjálfur í herbúðum þeirra er stutt hafa upplausnina. Maður sem hlaut upphefð sína með því að stýra hlutdrægu fréttamati í Panama­málinu sem helsti álitsgjafi RUV í málinu, án nokkurrar sér­mennt­unar og þekk­ingar á því sem fram fór.

Hvenær var það annars í hlutverki fjármála­ráðherra minni­hlutans að lýsa yfir þingslitum? 

Þetta er fullkomlega galið.

Jón Steinar Ragnarsson


mbl.is Fundað í Stjórnarráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorvaldur Gylfason fer offörum í rangfærslum

Þvílíkt rugl í Fréttablaðinu í dag, hann lætur sem "nýja stjórn­ar­skrá­in" sé LÖG í landinu! "Stjórn­laga­ráð" hafði sem slíkt EKKERT löglegt umboð frá lands­mönn­um, aldrei var kosið til þess í al­menn­um kosn­ingum, heldur var kosið til stjórn­laga­ÞINGS, en kosningin sú með ýmsum ágöllum og ógilt af sjálfum Hæstarétti Íslands fullskipuðum og kjörbréfin tekin af þeim "kjörnu"; átti þá að endurtaka kosninguna skv. lögum, en Jóhanna og Steingrímur svikust um það og völdu í staðinn að fara að hvatn­ingu róttæks búsáhalda­mótmælanda, Illuga Jökuls­son­ar, að sniðganga úrskurð Hæstaréttar, og það gerðu þau og þeirra lið, en þó ekki nema 29 alþingismenn alls!! Frá þeim einum hafði þetta meinta stjórn­lagaráð umboð sitt, þó ólöglegt, því að við skipan "ráðsmannanna" var þess ekki gætt, að í gildi voru lög um stjórn­lagaþing, og samkvæmt þeim og almennum kosn­inga­lögum ÁTTI að endurtaka kosn­inguna til stjórnlagaþings!

Þorvaldur Gylfason og félagar, þ. á m. að minnsta kosti 10-11 ESB-innlim­un­ar­sinnar, tóku svo þátt í þessu, samþykktu (með einni undantekningu) hina ólögmætu skipan sína af hálfu hinna 29 alþingismanna! (þáttur í plottinu var að "stjórn­lagaráðs­mönnum" var lofuð tvöföldun setutíma síns og þar með tvöföldun launa!).

Aldrei stóð til, að öll stjórnarskráin yrði stokkuð upp, en glaðhlakkalegir lögðust Þorvaldur og félagar í þá óumbeðnu vinnu, eins og til að tryggja að sem minnst ráðrúm yrði til að kjósendur gætu í reynd haft áhrif á einstakar greinar.

Í lögum um stjórnlagaþing höfðu verið talin upp 8 (átta) atriði sem stjórnvöld (ríkisstjórn og Alþingi) vildu ræða og breyta. þ.á m. ákvæði um framsal ríkis­valds, en ekki þorði þó Jóhönnustjórn að leggja hina billegu lýðveldis­svíkjandi 111. tillögu­grein (og 67. gr.) stjórnlagaráðs um framsal ríkisvalds (í reynd í þágu Evrópu­sambandsins!) undir dóm kjósenda, það kom bara ekki til greina! Því réð ekki sízt Samfylkingarkonan Valgerður Bjarnadóttir, formaður eftirlits- og stjórn­skipunar­nefndar. 

Ekkert fór "stjórnlagaráð" eftir ítrekaðri hvatningu Þjóðfundarins 6. nóv. 2010 um mikilvægi fullveldisréttinda lýðveldisins!

Jón Valur Jensson.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband